Aðalvalmynd

Prófíll

Tenglar

Teljari

Je je je...ooooArna

Ég hef í rauninni ekkert að blogga um, allt voðalega svipað hjá mér en ætla að koma með eitt Michael Jackson bloggWink Þeir sem eru komnir með ógeð af allri umfjölluninni af honum skulið bara sleppa að lesa... ég veit að ég fæ aldrei ógeð heheLaughing

 

Ég byrjaði að hlusta á MJ þegar ég var örugglega svona 7 ára eða eitthvað því önnur hvor systir mín átti Dangerous á kasettu. Ég gat hlustað á hana aaaallan daginn. Mér fannst hann lengi vel ótrúlega sætur, meira að segja þegar mörgum fannst hann forljótur. Mér finnst ömurlegt að við fáum ekki meira frá þessum snillingi því hann var einfaldlega KÓNGUR POPPSINS. Hæfileikarnir voru svakalegir og hann var að mínu mati frábær einstaklingur sem því miður átti mjög erfiða ævi. En sjitt hvað hann var svalur, hann var einfaldlega svalastur og flottastur. RIP

 

Uppáhaldslögin mín  með honum (sem eg man eftir akkurat nuna):

Black or white

Dangerous

Give in to me

Jam

Beat it

Smooth criminal

Bad

Who is it

Thriller

In the closet

Billie Jean

Blood on the dancefloor

Scream

They don't care about us

You are not alone

Why you wanna trip on me

''I´m just like anyone. I cut and bleed. And I embarass easily." - Michael Jackson


Ofur sætur Laughing

Ég elskaði lika Michael Jordan þannig að myndbandið við "Jam" var osom


Of svalurCool

One by oneArna

Sumarið er eiginlega komið (held ég) og mér finnst það æðislegt, fyrir utan flugurnar og skordýrin... fyrir mig sem er hrædd við litlar hús(a)flugur þá er sumarið ekki alveg 100% unaður en samt alveg svona 96%Smile

 

Búið er að skrifa undir leigusamning, og alltaf styttist í suðurferðina sem ég get ekki beðið eftir. "Eigin íbúð" hljómar ótrúlega velLaughing. Líka búið að panta gistingu í London 10-15 júlí... þá er bara að fá miðana  og síðan er það MICHAEL JACKSONLaughing

 

Haldið þið ekki bara að ég hafi fengið 9 í báðum efnafræðiáföngunumLaughing er ótrúlega ánægð með það þannig að ég er búin að sækja um í Háksóla Íslands í hjúkrunarfræði, spennó. Það sem var nú alveg frábært var að ég var að troða mér í þessa 2 efnaf.áfanga á miðri önn til þess að komast í hjúkrunarfræði, og fékk það í gegn, barðist síðan við að læra og læra, heyrðu svona viku fyrir prófin þá tók HÍ út þau skilirði að að vera búin með þessa áfanga... ég varð ansi pirruð, en núna er ég auðvitað ánægð að vera búin með þettaSmile

Spennó helgar framundan. Ragnhildur, Óskar og Þórdís eru að útskrifast næstu helgi og þá verður djamm djamm djamm, hlakka ótrúlega mikið til. Síðan 5-7 júní á Signý afmæli og þá verður mikið djammað og knúsað og hlegið... Þetta verður SVO gaman.

Vitiði ég hef bara ekkert að segja þannig að ég sé ykkur bara síðarTongue out

Arna - sumarið er tíminn Cool

I try to run, but see I’m not that fast.Arna

Guðrún Eik er orðin reið að ég bloggi ekki, og ekki viljum við hafa hana reiða er það? Wink Ónei þannig að  hér er blogg en Guðrún Eik ég hef ekkert að segja þannig að enga kvörtun yfir lélegu bloggi takk Laughing haha

Jæja ég er á fullu í efnafræði og gengur bara nokk vel, en ég ætla ekki að vera með neinar yfirlýsingar  fyrr en ég er búin í prófunumWink


Agnar bróðir búinn að fermast og meeeen það var góður matur og kökur... mm... þannig að á þessu heimili eru allir orðnir fullorðnir..Smile


Við Jói erum komin með íbúð fyrir sunnan... jeij... þannig að ég er að fara yfir um af spenningi... Laughing ligg á Ikea.is allann daginn að skoða  glös, baðmottur og uppþvottabursta ... jebb ...  sorglega Arna Embarassed eeeen mér finnst það ógó gaman.. Var að fara yfir það sé ég á og á ekki, ég hélt að ég ætti bara soldið mikið en í rauninni á ég rosalega lítið þannig að þegar við komum suður verður farin rándýr ferð í Ikea... en ég hlakka suddalega til...Laughing

Hlakka líka bara mest til að hafa flestar vinkonur mínar í kringum mig, það er nottla bara ofurlangt síðan Signý flutti frá mér og síðan fór alltaf ein og ein í burtuCry, þannig að ég hlakka svakalega mikið til að komast suður Laughing og búa ein, omg ég hef búið hjá mömmu og pabba alla ævi þannig að þetta verður rosalega mikil breyting..

 

Búin að panta flug til London... ójá... bara eftir að panta gistingu og fá miðana og þá erum við good to go.. AAAH hlakka svooooo til....Laughing

Haha elska Friends... Joey er æði

Af því að ég er búin að kvarta yfir jellybelly svo lengi þá er kannski tilbreyting að fá aðrar féttír... jellybellíið mitt er búin að minnka... jebb maginn er orðinn örlítið sléttari... Laughing

Mmm ég er að bíða eftir að kl verði hálf sjö, þá er löglegt að fara að búa til pizzur, elska heimapizzur...



Ok ætla ekki að bulla meira.. bless í bili elskurnarKiss

Arna - spennta spenntaCool

Vúhú !!!Arna

Jæja nú þarf ég mikið að tjá mig um einn hlut. Þegar ég vissi að það væri svona 80% líkur á honum fór ég að gráta. Þegar ég fékk staðfestingu á honum í gærkvöldi þá hljóp ég um húsið og fór aftur að gráta og titraði og hló síðan upp úr þurru í svona klukkutíma á eftir. Ég svaf sama sem ekkert í nótt og ég er manneskja sem sef lengi og mikið en ég gat ekki sofið lengur en til hálf 9 í morgun Laughing

Ok allavegana málið er að ÉG ER AÐ FARA Á MICHAEL JACKSON TÓNLEIKA Í JÚLÍ Í LONDON.!!!!LaughingLaughing

Ég, Rannveig og Svala erum að fara og sko þeir sem þekkja mig vita hvað þetta er stórt fyrir mig. Þetta er án gríns bara dream come true. Ég sagði alltaf þegar ég var lítil að það væri tvennt sem ég ætlaði að gera einhverntímann á lífsleiðinni og það var 1. Að sjá Michael Jackson og 2. Að synda með höfrungum.

Ó MÆ GAD - Ó MÆ GAD - Ó MÆ GAD - ég er að fríka út Laughing

Ef það kemur í ljós að þetta er feik þá á ég eftir að gráta í 2 ár!!
Jæja ég ætla á tækið því ég er með of mikla orku í  mér núna... er að springa Tongue out

En þúst fólk ég er að fara að sjá þetta t.d.  http://www.youtube.com/watch?v=gHWKcC4qtXg

------------------------------------------------------------------

As He Came Into The Window
It Was The Sound Of A
Crescendo
He Came Into Her Apartment
He Left The Bloodstains On
The Carpet
She Ran Underneath The Table
He Could See She Was Unable
So She Ran Into The Bedroom
She Was Struck Down, It Was
Her Doom

Annie Are You Ok
So, Annie Are You Ok
Are You Ok Annie
Annie Are You Ok
So, Annie Are You Ok
Are You Ok Annie
Annie Are You Ok
So, Annie Are You Ok
Are You Ok Annie
You've Been Hit By
You've Been Hit By-
A Smooth Criminal

............

Arna - cha'monCool

One more word and you won’t surviveArna

Ég hef ákveðið mig, ég hef ákveðið að fara í hjúkrunarfræðiLaughing ég er nokkuð viss um að ég geti komist  yfir blóð- og nálahræðsluna í mér. Þó að ég eigi erfitt með að fara í sprautur þá kannski get ég auðveldlega sprautað aðra. Síðan fer ég kannski í ljósmóðurina ef ég hef ennþá áhuga á því. Mér finnst það gott plan. Heilinn á mér hefur allavegana róastWink


En af því að ég er útskrifuð af félagsfræðibraut þá vantar mig tvo efnafræðiáfanga til þess að komast í hjúkkunaYell Ég fékk svona góðar viðtökur í FNV og fékk að troðast inn í 2 efnafræðiáfanga, utanskóla,  á miðri önn. Þannig að nú er það bara að gjöra svo vel að spýta í lófana og læra og læra efnafræði og ná lokaprófunum. Mér finnst efnafræði ekki létt, þetta fer allt sikk sakk í höfðinu á mér. En hef ekki trú á öðru en að þetta takist Smile

 



Ég fékk góðar stúlkur til að vinna fyrir mig um helgina þannig að ég kemst á skagfirðingakvöldið...vúhúLaughing  og er farin að hlakka svona ótrúlega mikið til. Fór í klippingu í gær, var með ljóst hár niður fyrir herðablöð en núna er það koparbrúnt og bara niðrá axlirTongue out Ég get ekki verið eins í of langan tíma ég þarf alltaf að breyta... vesen á mér... en ég er allavegana bara soldið að fíla þetta hár sko... Ragnhildur segir að þetta sé flott, ég treysti henni, hún getur ekki logið um svona hluti maður sér það alltaf á henni hahahaSmile Nema hún sé að gabba mig svona svakalega núna hmm... Undecided Þarf að pæla í þessu


Jæja ætla að fara að fá mér að borða og fara síðan að læra 

Sjáumst á skagfirðingakvöldi Laughing

Arna - hressCool

You just tried too hard and you frozeArna

Ég er víst orðin 21 árs, úff það tók á að vera orðin 20 OG EITTHVAÐ... og það á ekki eftir að batna með árunumTongue out Takk fyrir allar kveðjurnarLaughing

Hausinn á mér er stanslaust á fullu og það er þreytandi. Ég get ekki ákveðið hvað ég vil læra, alla mína ævi hef ég verið alveg viss um að ég mundi ALDREI vinna á sjúkrahúsi, en einhvernvegin hef ég varla unnið annarstaðarUndecided Og núna get ég ekki útilokað það að ég vilji verða hjúkrunarfræðingur eða ljósmóðir. Vandræði. Mér finnst ekki gott að hafa ekki allt á hreinu þannig að þetta pirrar mig mikið. Síðan er svo mikið annað sem mig langar að gera og verða og oooohhhh pirringur pirringur...Yell

Bolludagurinn er ekki að hjálpa mér að vera holl. Bollur er svoooo góðar og ég er ekki sú besta í að halda aftur af mérInnocent  En ég er alveg að komast á það stig að LANGA TIL að hreyfa mig, er farin að nenna því, það er gamanLaughing

Mig langar svo á Skagfirðingakvöldið en ég held að ég komist ekki, big bömmerCry




Þetta eru lögin sem ég hlusta á þessa dagana.  Finnst þau rosa góð. Þau eru auðvitað öll úr Twilight myndinni en það er ekki þess vegna sem mér finnst þau góð.

Never Think - Rob Pattinson
Spotlight - Mute Math
Eyes On Fire - Blue Foundation
Full Moon - The Black Ghosts
Flightless Bird, American Mouth - Iron & Wine

 

Arna - verðandi hjúkrunarfræðingur eða ljósmóðir?

Beautiful !!Arna

Ég hef ekkert að segja þannig að ég hef ekkert bloggað. Jú nema eitt... áfram appelsínugulu mótmælendurnir sem verja lögregluna.... ooog af hverju er þessir mótmælendur að skemma þessi blessuðu hús? hvaðan koma síðan peningarnir til að gera við þau..hmm kannski bara frá okkur?? ok ætla ekki að byrja á að láta þetta lið pirra migYell

En ég rakst á þetta á veraldarvefnum og ákvað að setja þetta hérna inn. Mér finnst allir punktarnir svo ótrúlega réttir og finnst að við ættum öll að fara eftir þessu
Smile





1. Take a 10-30 minutes walk every day. And while you walk, smile.
2. Sit in silence for at least 10 minutes each day.
3. Sleep for 7 hours.
4. Live with the 3 E's -- Energy, Enthusiasm, and Empathy.
5. Play more games.
6. Read more books than you did the previous year.
7. Make time to practice meditation, yoga, and prayer. They provide us with daily fuel for our busy lives.
8. Spend time with people over the age of 70 & under the age of 6.
9. Dream more while you are awake.
10. Eat more foods that grow on trees and plants and eat less food that is manufactured in plants.
11. Drink plenty of water.
12. Try to make at least three people smile each day.
13. Don't waste your precious energy on gossip.
14. Forget issues of the past. Don't remind your partner with his/her mistakes of the past. That will ruin your present happiness.
15. Don't have negative thoughts or things you cannot control. Instead invest your energy in the positive present moment.
16. Realize that life is a school and you are here to learn. Problems are simply part of the curriculum that appear and fade away like algebra class but the lessons you learn will last a lifetime.
17. Eat breakfast like a king, lunch like a prince and dinner like a beggar.
18. Smile and laugh more.
19. Life is too short to waste time hating anyone. Don't hate others.
20. Don't take yourself so seriously. No one else does.
21. You don't have to win every argument. Agree to disagree.
22. Make peace with your past so it won't spoil the present.
23. Don't compare your life to others'. You have no idea what their journey is all about. Don't compare your partner with others.
24. No one is in charge of your happiness except you.
25. Forgive everyone for everything.
26. What other people think of you is none of your business.
27. However good or bad a situation is, it will change.
28. Your job won't take care of you when you are sick. Your friends will. Stay in touch.
29. Get rid of anything that isn't useful, beautiful or joyful.
30. Envy is a waste of time. You already have all you need.
31. The best is yet to come.
32. No matter how you feel, get up, dress up and show up.
33. Do the right thing!
34. Call your family often.
35. Your inner most is always happy. So be happy.
36. Each day give something good to others.
37. Don't over do. Keep your limits.


Arna - hafið það sem best

Blogg 2009Arna

Nýtt ár.. úff mér finnst það alltaf erfitt af einhverjum ástæðum... kannist þið við það? Kannski af því að ég kemst í svo geggjað mikið jólastuð og áramótastuð og fullt af djammi en síðan allt í einu er það búið .... í bili allavegana... Wink Ég held að 2009 verði gott ár.

 

Síðan eru það nýársheitin... mín eru einföldTongue out ... koma mér í form og fá sléttan maga... gera eitthvað klikkað....( eitthvað klikkað á mínum mælikvarða gæti verið að keyra hringinn í kringum landið... aha ömurlegt ég veit) fá meira út úr hverjum degi... ekki bara vinna, leggja mig, borða og horfa á sjónvarpið...Undecided En einhvernvegin sé ég lítið af þessu gerast en hver veit hvað 2009 ber í skauti sér...Wink

 

En alltaf þegar það kemur nýtt ár uppgötva ég að ég hef ekki gert mikið af því sem mig langar... ýmislegt sem er kannski soldið hallærislegt ...hmm....t.d.

 Omg svo fattaði ég að ég er að verða 21 árs eftir tæplega 2 mánuði...Surprised

 

Þetta er ekki mjög uppörvandi blogg... við skulum breyta því...

Jólin voru æði... alveg ágætt bara að vinna og djömmin 26. Og 27. des voru æðisleg... sérstaklega að hitta allar vinkonurnar sem eru farnar frá mér og þær sem ég hitti sjaldan... og fjölskyldan... æji þetta var bara yndiSmile

 

Úúúú ég fékk bók í jólagjöf.. Ljósaskipti/Twilight... Ó MÆ GOD HÚN ER ÆÐI... oh hún er bara yndisleg þessi bók, ég bara var með kökkinn í hálsinum síðustu 100 bls eða eitthvað og ..... oh hún er bara GEGGJUÐ... get ekki beðið eftir að nálgast næstu bók (þetta var 1 af 4)... varð bara að tjá mig um hana... ég bara get ekki hætt að hugsa um hana hún var svo mikið geggjuð hahaLaughing

 


Vitiði eins og ávallt hef ég ekki brjálað mikið að segja en alltaf verða bloggin löng... eeeen langt blogg er betra en ekkert blogg mundi ég segjaWink

 

Arna - langar að gera eitthvað klikkað á næsta ári... hvað ætti ég að gera ??? you tell me

I can't tell you something that ain't realArna

Datt í hug að blogga því nú eru flestir búnir í prófum og þá kannski kommentar einhver... en ég er kannski með of miklar væntingar...Undecided

Er komin í 5 daga jólafrí Laughing þ.e.a.s. þangað til aðfaranótt Aðfangadags því ég er á næturvöktum um jólin og síðan að vinna alveg á milli jóla og nýárs þannig að ég er ekkert að fara í bilað mikið jólafrí Undecided



Það eru allir alveg að fara að koma. Sunna, Lilja, Rebekka og Andrea, Signý, Þorgerður, Guðrún Eik, Rakel, Anna Lóa og bara ALLIR og það er svoooooo gaman.

Ég og Jói eigum „afmæli" á sunnudaginn. Þá erum við búin að vera saman í sex ár takk fyrir. Á hverju ári þegar ég tala um það við mömmu hugsar hún mikið og síðan galopnast á henni augun og hún segir á háa-c-inu „varstu 14 ára???" haha síðan situr hún eftir í sjokki. En samt sjitt... 14 ára... uss hehe Laughing

Jæja annars ekkert að frétta nema ég er heima í jólaskapi og sátt við lífið.. Wink

Oh andsk. Ég þarf að fara að gera þessar blessuðu æfingar... þið ættuð að sjá mig liggjandi á gólfinu að gera einhverjar fáránlegar æfingar, en þær virka... hehe góð skemmtunSmile

Hey ef þið sjáið mig- hvar sem er og hver sem þú ert- og ég er hokin í baki  þá máttu pikka í mig og skipa mér að vera bein í baki...  án gríns... bakið á mér lagast ekki fyrr en ég læri að vera ALLTAF bein í baki og ég sá líka hvað það er ógeðslega ljótt að vera hokinn... jeminn þannig að PIKKIÐ Í MIG...

Arna - langar á æfingatækið... án gríns !!

Jóla jóla ... jeij :DArna

Jaaaaajæja það er svo sem ekkert brjálað mikið búið að gerast síðan ég bloggaði síðast. Fékk þær góðu fréttir að ég þurfti bara að fara í blóðprufu í síðustu viku en þarf ekki að fara aftur í þessari viku... vúhú... ég varð skjannahvít og kófsveitt eftir blóðprufuna á miðvikudaginn þannig að ég er fegin að sleppa við það í þessari viku.Tongue out

Ég er búin að einbeita mér að því alla vikuna að labba bein í baki og sitja bein í baki og beygja mig bein í baki og gera allt BEIN Í BAKI.. Jeminn þegar hún var búin að stilla mig þannig að ég væri bein þá fannst mér ég bara halla afturábak eða eitthvað... vissi að ég væri hokin en ekki alveg svona... Undecided

Annars er einmitt verið að kenna mér að beita mér rétt og gera ýmsar æfingar til að hjálpa mér í því og styrkja brjóstbakið á mér þannig að ég held að þetta sé allt í rétta áttina ... vúhúLaughing

Fór suður um helgina...

Föstudaginn: fór í Kringluna með Sunnu elsku systur og keypti jólagjafir handa Þorgerði, Signýju, Sólveigu og Ragnhildi. Fékk mér Dominos pizzu um kvöldið og hitti Jóa minn... eintóm gleðiLaughing

Laugardagur: Labbaði Laugavegin með Sunnu, fórum í fullt af flottum búðum og ég fann mér jólagjöf. Fór síðan á Broadway í viðtal fyrir ungfrú Norðurland, svaraði u.þ.b. 6 bls af spurningum, spjallaði við Arnar sem sagði að ég væri mjög líklega að fara í keppnina eeen hann samt gæti samt ekki beint sagt það núna... ég mundi fá hringingu síðar.Tongue out Síðan fór ég í Kringluna með Þorgerði elsku og keypti mér augnskugga frá Mac (uppáhalds augnskuggarnir mínir). Sunna og Steini elduðu síðan fyrir mig og jóa og OMG það var svooo gott... síðan melt allt kvöldið og hlegið svooooo mikið af Jeff Dunham, Achmed og Peanut -  http://www.youtube.com/watch?v=1uwOL4rB-go og http://www.youtube.com/watch?v=IZjMgbRUsZM hahaha er bara farin að hlægja á því að hugsa um þetta hahahaLaughing

Sunnudagur: Fór í Kringluna og keypti jólagjöf handa Jóa.. Vúhú... fékk blóðnasir í Kringlunni og kvaddi jóa með tonn af bréfi framan í mér hehe... æði... Undecided fór til Signýjar minnar elsku og síðan til Lilju minnar elsku systur og aftur á Stykkishólm...Smile

Nú vitið þið allt sem ég er búnað gera... ekki gaman ?

5 dagar eftir og svo heim í fjörðinn fagar.... Love it Laughing

Arna - æðisleg helgi

Síða 1 af 13

Textareitur

A chain is never stronger than the weekest link

Auglýsing

Sniðugt bloggfólk

Nýjast á B2.is